Íslensk leturhönnun
Ég rakst á Portfolioið hans Úlfs Kolka á Flickr í dag og fann þar nokkuð magnaðar leturgerðir.
Andmæli er leturgerð sem er byggð á stöfunum sem Helgi Hóseason, mótmælandi Íslands, notar á skiltin sín og Cubix Rube er leturgerð sem er byggð á 3×3 gridi, svipað og Rubix Cube kubbarnir eru.
Gaman að rekast á svona hluti á Netinu, sérstaklega mótmælaletrið í anda atburða síðustu daga.
Vefútgáfa Photoshop ókeypis!
Adobe opnaði vefinn Photoshop Express í morgun. Photoshop Express er mjög létt útgáfa af Photoshop sem inniheldur aðeins grunn fítusa ss. crop, exposure, red eye retouch og fleira. Notendur fá 2GB pláss fyrir myndirnar sínar sem þeir geta síðan breytt í Express og embeddað á community vefi eða linkað á gallery o.fl.
Express er í rauninni blanda af Picnik og Flickr og er tilraun Adobe til þess að næla sér í þá notendur sem ekki hafa efni á Photoshop, eða Photoshop light en þurfa á myndvinnsluforriti að halda til þess að vinna ljósmyndir sínar fyrir community vefi ss. MySpace og Facebook.
